Friðrik Ólafsson tók í fyrsta skipti þátt í kappskákmóti á Íslandi síðan 2001 þegar hann settist að tafli á Norðurlandamóti öldunga í Reykjavík í september 2011. Mótið var í senn það langsterkasta og fjölmennasta frá upphafi, en fyrsta NM öldunga var haldið 1999 í Karlstad í Svíþjóð á 100 ára afmælisári Skáksambands Norðurlanda og hefur verið haldið á tveggja ári fresti síðan.
Alls mættu 52 kempur til leiks og var Friðrik stigahæstur, en auk hans tóku tveir stórmeistarar þátt í mótinu, Finnarnir Yrjö Rantanen og Heikki Westerinen.
Friðrik, sem var meðal elstu manna, var í fararbroddi allan tímann og fyrir síðustu umferð var hann efstur ásamt Rantanen og danska FIDE-meistaranum Jörn Sloth með 6 vinninga af 8. Í síðustu umferð hafði Friðrik svart gegn Westerinen og sættist á skiptan hlut eftir aðeins 11 leiki.
Rantanen og Sloth unnu báðir sínar skákir og urðu því efstir og jafnir með 7 vinninga, en Friðrik varð að gera sér bronsið að góðu.