Friðrik sigraði
Tíminn, 16. júní 1965:
Friðrik Ólafsson, stórmeistari varð sigurvegari í júní-skákmótinu, þegar hann sigraði hinn 17 ára Íslandsmeistara, Guðmund Sigurjónsson, í síðustu umferðmni í aðeins 22 leikjum, en þeir voru jafnir fyrir umferðina. Þetta er í fyrsta sinn, sem þeir mætast við skákboröið, og sennilega hefur taugaspennan haft ein hver áhrif á skák unga meistarans, en að öðru leyti tefldi hann mjög vel í mótinu.
Friðrik hlaut 4,5 vinning úr fimm skákum, Guðmundur varð nr. 2 með 3,5 v. Freysteinn Þorbergsson og Jón Hálfdanarson hlutu tvo vinninga og skipa því þriðja og f jórða sætið í landsliðsflokki. Björn Þorsteinsson varð fimmti með 1,5, og Haukur Angantýsson sjötti með hálfan vinning.
Jafnframt kepptu efstu menn í meistaraflokki frá síðasta ÍsIandsmóti um sæti í landsliðsflokki, og urðu Jóhann Sigurjónsson og Sigurður Jónsson efstir með 2,5 vinning.
1965: Júnímótið í Reykjavík
Árangur Friðriks og vinningshlutfall
Skákirnar
Veljið skák með stikunni yfir borðinu – Hægt er að kveikja á skákreikni neðst í hægra horninu